Auglýsing

Um Hörpuna frá görlsonum

Frá Önnu Karen:

Harpa Sif
Harpan mín eins og ég kalla hana alltaf er ein af mínum allra bestu. Ótrúlegt hvađ ein manneskja getur veriđ frábćr í alla stađi - fullkomin vinkona.
Harpa er alltaf góđ og hún er góđ viđ alla. Geđveikt gott ađ tala viđ hana ţegar eitthvađ bjátar á hún skilur mann alltaf svo vel og er alltaf til í ađ hlusta á hvađ manni liggur á hjarta og kemur manni til ađ brosa ;*
Harpa er líka geggjađur djammfélagi - alltaf á barnum :)
Góđ, sćt, flott, skemmtileg, bara frábćr hún Harpa ;* Hún bíđur ennţá eftir draumaprinsinum en hann kemur.
Elska ţig Harpan mín ;*

Frá Bríet Kristý:

Harpan... Ég veit ekki hvar ég á ađ byrja... Frekar erfitt ađ gera stutta lýsingu ţar sem ţessi manneskja býr yfir svoo miklu sem hćgt er ađ segja frá. En ég kynntist Hörpu í gegnum Önnu Karen og ţakka guđi fyrir ţađ. Hún er yndisleg stelpa í alla stađi, hún er ótrúlega góđ, gott ađ tala viđ hana og rosalega skilningsrík... Hún á tvímćlalaust sín ljóskukomment eins og flestir og ţau eru ógleymanleg.. eins og handbremsan
Harpan er svo sannarlega vinur vina sinna og gerir allt til ađ reyna ađ gera ţá glađa.. Hún kann líka ađ samgleđast fólki og ţađ kann ég ađ meta ţví ţađ geta ekki allir! Tala svo auđvitađ um hversu sćt hún er, ţetta bros brćđir hvađa strák sem er, örugglega stelpur líka.. sjúgarpć sem enginn má missa af... lovjú:*

Leit

andsetin eđa ekki andsetin, ţađ er Harpa

21. október 2008 klukkan 21:07
útdráttur? góđur dráttur? slćmur dráttur?
Tvćr vinkonur fóru á bar og drukku sig fullar eins og kvenna er siđur...
framhald í blogginu..... Nánar

Harpan er komin aftur!

14. október 2008 klukkan 14:00
að ég skuli ennþá muna aðganginn minn hérna..

vá það er búið að breyta þessu svo hérna að ég var búin að skrifa allt bloggið í e-ð sem á þá sem sasgt að vera úrdráttur.. á bloggi.. en jæja..

en já þessi blessaða ólukka mín er farin að láta sjá sig aftur og það verulega! ég held að dúddinn þarna uppi sé bara að benda á mig og grenja úr hlátri.. þið vitið svona eins og þegar maður horfir á death at a funural hlátur! sem maður bara GETUR ekki hætt!

Hörpu moment. taka 1

Ok í gær þá fékk ég sms frá einni í skólanum og ætlaði að hringja bara til baka, þannig byrjaði þetta.. og það hringir ekkert og e´g bara ohh e-ð bilað í kerfinu og reyndi aftur og aftur og svo fæ ég sms "ég heyri ekkert í þér" og ég bara whaaat? þá sem sagt hringdi alveg og hún svaraði ég bara heyrði ekkert! kom ekki einu sinni sónn! ég nottla bara í e-ð panik, áttaði mig á að ég var e-ð 1 bara í íbúðinni í rvk og með engann síma.. þá varð mér ljóst að ég var ALLSlaus bara því það vantaði símann! ég nota þetta apparat auðvitað sem klukku og gat ekkert notað hana því ég vakna jú ekki við vekjaraklukku þegar það heyrist ekkert í henni..
fór niður til Rakelar sem var sofandi (ég vissi það auðvitað ekki strax) og sendi henni sms og e-ð því ég gat nottla ekki hringt, það endaði sem sagt með því að ég fékk lánaða vekjaraklukku hjá henni..
en svo var ég andvaka og fór að dunda mér e-ð við að laga símann, sem ég hélt ég væri snillingur og tók þá batteríið úr klukkunni því það heyrðist í henni eins og það væri bara doomsday eða e-ð að telja niður í e-ð voðalegt og já ég fór þá að sofa en neibb.. þá var ég ekki búin að laga símann og hann er enn bilaður:( lagaðist bara í smá tíma og dettur svo út aftur!
svo er ég á leiðinni út, og fer að tékka á bíllyklunum (sem varalykillinn af er á AKUREYRI!! kannski sækja það) og þeir voru þá ekki á úlpuvasanum.. og ég leita og leita án gríns örugglega í korter og þetta er nú ekki stór íbúð, korter hér er MIKIÐ! ég var farin að hugsa ok mér er bara ekki ætlað að mæta í þennan helv tíma! og ekki labba ég! með allan farangurinn sem maður þarf að hafa í skólann í verklegu.. og ég hundfúl bara ok ég gefst upp nenni þessu ekki.. en hugsaði samt ok ég er vöknuð ég get ekki bara setið hér og gert ekkert.. renni niður úlpunni og bara hmm.. það er vasi á þessari peysu.. fer í hann. . ERU EKKI LYKLARNIR ÞAR!!! búin að vera með þá á mér allann tímann! týpísk ég!
OG já svo er msn bilað hjá mér svo samskipti mín við umheiminn eru bara EKKI! mér er bara ekki ætlað að ræða við 1 eða neinn!


eeen svo vantar mig fleiri One Tree Hill þætti, er búin að horfa á 3 á YOUTUBE hehehe í 6 pörtum hver þáttur.. var e-ð að dunda mér um daginn og endaði á að horfa á 2 þeirra og varð næstum of sein í vinnuna fyrir vikið

ooog .. svo komst ég að því að ef maður skrifar Akureyri á youtube þá kemur upp fyrst runtur á akureyri hahahahahaha einhverjar 3-4 mín af rúntinum.. tjékk it out voða spennandi:D


oke bleeess:D

Bloggar fólk ennţá?

05. september 2008 klukkan 00:52
nei maður spyr sig, ég hef þá misst af því að skoða það, ég man ekki einu sinni hver er með blogg (eða var) og hvað var svona e-ð sem maður nennti að lesa.. þið vitið e-ð svona skemmti;)

annars heiti ég Harpa svona fyrir þá sem voru búnir að gleyma (ekki að ég haldi að nokkur maður lesi þetta ennþá) alveg búin að bregðast lesendum síðan ég veit ekki hvenær

ég er sem sagt borgarmær núna, búin að skella mér á fyrsta djammið, var ekki nauðgað, gott start það... nei haha ojjj en svona í alvöru, meira en að segja það djammið hérna!
bý hjá Calla frænda og Sollu í Grafarvoginum þangað til ég fæ íbúð downtown, hann Kristján ætlar að vera svo elskulegur og leigja mér íbúðina sína á meðan hann er úti, ekki leiðinlegt það

ætli ég eigi ekki eftir að lifa á núðlum og mjólkur eða hafragraut þennann veturinn.. sýnist það svona á öllu, þá erum við AUÐVITAÐ að tala um svo ég geti leift mér að tjútta;) það er bara e-ð sem maður fórnar ekki, matur.. ég fer þá bara að betla eða e-ð:D með voða puppy eyes.. já talandi um puppys, þá var systir mín að fá sér 2 kvikindi, ekkert smáááá sætir! Tumi og Polly og ég bara sakna þeirra slatta.. og auðvitað Skugga litla greyjið alltaf skilinn útundan en jæja nú stefnir í leiðinlegt blogg ég kannþetta ekkert lengur, gefið mér smá tíma, annað hvort kem ég mér á svakalegt skrið on fire bara eða ég bara hreinlega loka búllunni


í bili.. adiosSaklaus

Einn brandari í ţynnkunni

10. febrúar 2008 klukkan 21:02

ég varð bara að henda þessum hérna inn sem ég fann á b2



Nemandi úr Samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi úti á landi.

Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt var að fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á manninn þótt hann væri ungur og óreyndur og ákvað að taka hann til reynslu. Hann sagði manninum að mæta morguninn eftir og síðan myndi hann koma um kvöldið og athuga hvernig hefði gengið. Kvöldið eftir spurði hann unga manninn hvað hafði hann afgreitt marga viðskiptavini þennan fyrsta dag. ‘Bara einn,’ sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið en spurði hvað hann hefði selt fyrir mikið.
“Fimm milljónir eitthundrað níutíu og þrjúþúsund” sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.
 
“Hvað seldirðu honum eiginlega, spurði kaupfélagsstjórinn hissa?
 
“Jú, sjáðu til” sagði drengurinn, “fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Landróver. ”
Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði: ‘Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl”!!
‘Nei, nei,’ sagði strákurinn.
 
‘Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst að helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða!’

blank

06. febrúar 2008 klukkan 21:55
sjiiitt! ég fór í bíó á laugardaginn með Óla og við fórum á Death at a funural... Ó MÆ LORD!!! það komu tár! gvuuuð hvað hún er fyndin! ég bara átti ekki til orð ég bara greip um munninn og vældi og skældi af hlátri og ég bara fer að hlæja inní mér við hugsunina! þessa mynd ætla ég að eignast!!! aaaaaaahahahahahahahaha ég tek alveg bakföll af að hugsa um þessa mynd.. við erum að tala um.. t.d. gamla frændann.. sem bara er brjálæðislega fyndinn með að vera svona óendanlega leiðinlegur og greyjið vinurinn sem er að hjálpa honum bara svitnandi við að ýta hjólastólnum, með drullu á puttunum og feisinu sjáðu til! æji þú skilur þetta ef þú hefur séð myndina að þetta er BRJÁLAÐ! BRJÁÁÁLAÐ FYNDIÐ!

of langt síðan það hefur verið svona góð mynd í bíó og ég býð spennt  eftir næstu (skrifaði fyrst: fyrir næstu... eimmitt)

já og af lífinu.. ég er einmitt bara svona sirka BÚIN! TÓM! ég á ekkert eftir eftir daginn í dag! ég er bara já.. blank af þreytu, hendurnar fara að stoppa any minit, fara bara í verkfall!

þannig að ég ákvað að gera smá svona copy paste hérna.. sem er skrifað um vini og fólk sem manni þykir vænt um.. voðalega væmið og mjög sætt..:


Ást

byrjar með kossi og endar með tárum.

Ást byrjar með brosi, stækkar svo í koss og endar með tárum.

Ekki gráta yfir neinum sem grætur ekki yfir þér.

Traustir og góðir vinir eru erfiðir að finna en það er erfiðara að fara en algerlega ómögulekt að gleyma.

Þú getur aðeins farið eins langt og þú villt fara, gerðir þinar eru betri en 1000 orð.

Það erfiðasta sem hægt er, er að sjá einnhvern sem þú elskar, elska einhvern annan.

Ekki láta eitthvað slæmt úr fortíðinni halda aftur af þer því þú ert að missa af öllu því skemmtilega sem er í nútiðinni.

Lífið er svo stutt, að ef þú lítur ekki I kring um þig stundum og stundum gætiru misst af því.

Vinir eru eins og fjögurra blaða smárarnir, erfiðir að finna og mjög heppin þegar hann finnst.

Sumir gera heiminn sérstakann bara með því að vera í honum.

Bestu vinir eru systkinin sem Guð gleymdi að gefa okkur Ef að það særir að líta aftur og þú þorir ekki að líta fram á við þá geturu litið til hliðanna og vinur þinn er þar.

Alvöru vinátta endar aldrei.

Alvöru vinir eru til eilífðar.

Vinir eru eins og stjörnur, þú sérð þá ekki alltaf en veist að þeir eru alltaf þar.

ekki vera leiður því þú veist aldrei hver verður ástfanginn af brosinu þínu.

Hvað gerir þú þegar eina manneskjan sem getur hætt að láta þig gráta er sá sem lét þig fara að gráta.

Enginn er fullkominn þangað til þú verður ástfangin af honum Allt er gott á endanum.

Ef eitthvað er ekki gott þá er það ekki endirinn.

Margir geta farið inn og út úr lífi þínu en aðeins vinir og þeir sem þér þykir vænt um skilja fótspor eftir í hjartanu þínu .





segjum þetta gott í bili elskurnar mínar

Harpan farin heim að lulla!!!!!

ég ćtlađi bara ađeins ađ update-a síđuna..

30. janúar 2008 klukkan 21:01
koma með nýtt og fresh svona í tilefni dagsins..

eða nei annars.. ég hef e-ð minna að skrifa um..

nema að ég hlakka bara slatta til að fara aftur á Medullu, get ekki sagt annað en að ég þurfi smá brake frá fatabúðavinnu!

gott í bili:) ég veit þið bíðið spennt eftir næsta.. ég er bara með ritstíflu!

höres folkz.. adios

Á Spán' er gott ađ djamm' og djúsa..

16. janúar 2008 klukkan 21:42
sjiiitt hvað það er e-ð kalt núna! ég er bara búin að fjárfesta í góðri Cintamani ullarhúfu með flís inní og nú vantar mig einhverjar nýjar lúffur sko! ullarpeysu og ullarsokka og allt! ég er bara alltaf að frjósa.. svo er maður að kvarta..

55 stiga frost í Síberíu!!! SÆLL! ég veit maður myndi bara sætta sig við það! fólk deyjandi og spáð því að rafmagn gæti farið af húsum og svona.. get rétt ímyndað mér það að sitja í gúddí fílíng heima hjá mér (einmitt í gúddí fílíng í 55 stiga frosti.. en jæja) og svo fer rafmagnið.. ekkert hægt að hita upp nema kannski með smá eldi í einu horni á húsinu.... EINMITT.. myndi maður ekki bara splæsa í ferð þangað sem er heitt.. JÚ! já og talandi um það.. mig langar AGALEGA að fara til útlanda í sumar, þeir sem vilja styrkja gott málefni er bent á að leggja framlag sitt inn á reikning minn sem ég hef stofnað fyrir þetta í banka 0302-26-045257 (voða flott.. þetta er hjálp á símanum:D er þetta ekki kúl hjá mér.. það er alltaf svona í þáttunum í útl. sem maður á að hringja inní)

jæja ég ætla að segja þetta gott í bili

blæ:D

speees

15. janúar 2008 klukkan 21:22

ég er loksins búin að læra að gea e-ð svona á facebook og prófaði að gera e-ð próf þarna sem var efst hjá mér.. niðurstaðan var þessi... jeijjj

Who is Your Ideal Mate?

Your Ideal Mate is Harpa Sif Tulinius Sigurðardóttir. There is no one more perfect than you and no one else perfect enough to match you ideally.

Harpa Sif Tulinius Sigurðardóttir


speees!!! jeij ég og Óli erum sem sagt að fara að hætta saman any minit og ég verð single það sem eftir er? hahahaha

annars nenni ég ekki að blogga.. ákvað bara að henda þessu inn til að hafa svona e-ð new hérna;)

leiter

blogg já?

02. janúar 2008 klukkan 20:14
það er jafnvel e-ð búið að gerast síðan síðast..

en 1 fyrst.. finnst engum öðrum en mér spes að Kaffi Ak auglýsti "og auðvitað frítt inn" á gamlárs en rukkar svo inn? kannski er maður orðin húkt á svona því maður á nottla ekki bót fyrir boruna á sér.. ekki það að kallinn bara splæsti 500 kallinum á dömuna sko en mér er sama.. soooldið spes hehe

og já.. ég flutti sem sagt heim og svona, byrjaði að vinna á Medullu, fannst svona ljómandi fínt bara, er núna byrjuð að vinna hjá Símanum aftur á Akureyrinni, vantar nú e-ð af gamla liðinu.. eiginlega slatta.. verð að vinna í Sportver e-ð fram í mánuðinn á meðan verið er að breyta Medullunni, já svo erum við Óli í risa stórri íbúð í Tjarnalundinum, jæja þetta er allavega stærra en herbergin á mömmuhótelum, á 4 hæð líka þakka fyrir.. er svona næstum því hætt við að fara í ræktina af hættu við að verða OF mjó!

uss var rétt í þessu að ljúka símtali í vinnunni þar sem konan´spurði mig í endann á símtalinu.. sem ég fékk alveg að heyra að var ekki vinsælt og ég var ekki alveg hennar cup of tea.. spurði mig bara já og þú sagðist heita.. Harpa segi ég þá og hvers dóttir? ég bara já sæll.. var að spá í að segja henni númer hvað ég nota skó og hvað ég vil ofan á pizzu.. uss.. en auðvitað gerði ég það ekki þar sem ég er fyrirmyndarstarfsmaðursímans og mjög kurteis manneskja.. eða svona yfirleitt allavega.. en það sem fólk getur tuðað og verið með leiðindi yfir e-u sem skiptir svo ENGU máli! hahaha

en jæja.. off I go.. vinnan kallar..

Harpa Sif ofurblogger.. out

Hvar lćrđuđ ţiđ mannasiđi?

04. desember 2007 klukkan 13:22
ég opna bloggið og allt.. ekki að það hafi verið e-ð merkilegt á því, finnst bara engin ástæða að hafa þetta opið fyrir hnýsið fólk en engu að síður ákvað ég að opna það, hitt fólkið á ekki að þurfa að gjalda fyrir hnýsni annarrra

EN... ég opna sem sagt bloggið.. tölurnar bara rjúka upp á heimsóknarteljararnum og fólk greinilega að skoða og skoða og getur svo ekki sett eitt lítið hæ í komment:O ojj þér!

En.. aftur.. þá er ég að flytja heim á MORGUN! uss ég get ekki beðið! Er bara að fara að vinna á fullu á Medullu og ætla (að reyna) að vera ógeðslega dugleg í ræktinni! mann langar að gubba ég er búin að sukka svo síðan ég flutti suður.. verður gott að koma heim go ekkert að vinna á kvöldin, komast alltaf í mömmumat og svona mmmm annars er það bara salat salat salat.. og hollustan bara.. já.. einmitt.. akkurat.. hehe

en jæja ég hef ALLT og miklu meira og betra að gera en að blogga.. Harpa þó! alltaf að gera e-ð semég á ekki að vera að gera!

farin.. og viljiði kvitta? plííííííííís? Hlæjandi (ég gerði broskall og allt..)

ég fell fyrir Frinsum og er Hrá Dramakvín

29. nóvember 2007 klukkan 19:36
þetta er mjög skondið! takið þetta:D






Þú ert hrá dramadrottning.


Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust "rare", "medium rare", "medium" og "well done" værir þú vægast sagt hrá. Jafnvel svo léttsteikt að heyra mætti hamborgarann baula þegar gafflinum væri stungið í hann. Þú ert drottning dramadrottninganna, tilfinningarík en fylgispök.

Hráar dramadrottningar lifa í afneitun. Þær viðurkenna ekki að þær séu dramadrottningar og telja sig búa yfir stóískri ró. Þegar bóla birtist á nefi, könguló sleppur inn um svefnherbergisgluggann eða hárið lætur ekki að stjórn er drottningin ekki lengi að reka upp óp, stökkvað upp á stól eða grýta hárburstanum út um gluggann. Ekki er því ráðlegt að vera í nærveru dramadrottningar er hún tekur köstin sín nema réttur útbúnaður sé hafður við höndina, þ.e. hjálmur, eyrnatappar og súkkulaði (eina lyfið sem virkar þegar kemur að því að róa niður drottninguna). En þrátt fyrir allt eru hráar dramadrottningar vænstu skinn og þegar allt leikur í lyndi hjá þeim (aðeins þegar tungl er fullt) eru þær sérlega hressar og skemmtilegar.

Hversu mikil dramadrottning ert þú?




Þú fellur fyrir frinsum (froskur + prins).


Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að frinsum. Frinsinn líkist í flestu froskinum. Hann sýnir sjaldan rómantíska tilhneigð og getur átt það til að vera ansi óhugulsamurr. Láttu þér ekki bregða þótt frinsinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði ?ég vildi að frinsinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd? stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.

Þeir sem hyggja á samband við frins þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Frinsar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að frinsinn skipti um ljósaperu.

Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frinsinum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja frinsinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.

Eini munurinn á frinsinum og froskinum er sá að einstaka sinnum bólar á prinslegum eiginleikum í fari frinsins er hann kemur þér á óvart með framtakssemi eða rómantísku uppátæki.

Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?





nenni svo ekki að blogga neitt samt...

leiter folkz

úffff

20. nóvember 2007 klukkan 16:45
ég er alltaf slöpp, er ekki að ná mér, skólinn er að klárast, ég á eftir að klára ALLAR myndirnar í iðnteikningu, ég er ekki búin að fullklára 1 mynd! allt hálfklárað e-ð hjá mér, ég flyt heim eftir 2 vikur og byrja að vinna á Akureyri daginn eftir síðasta próf, ég veit ekki einu sinni hvort það verður veður til að keyra...

þarna kom Harpan sem ÉG þekki.. ofur stressuð og uptens.. sérstaklega svona fyrir jól

ég er núna að taka aðeins til því ég ætla að taka alveg heilann helling með mér norður núna þar sem ég veit ekki hvort ég keyri norður þarna 5. des (og nota bene prófið er kl 13 og örugglega ekki búið fyrr en í fyrsta lagi 16) en pabbinn minn er svo elskulegur að svona EF það verður vont veður þá ætlar hann að sækja mig, eða bílinn seinna bara, svo ég þurfi ekki að keyra ein í vondu veðri

en ég er nú að koma norður á jólahlaðborð um helgina og svo ætla ég bara að slappa almennilega af! gvuuuuð hvað ég væri til í að vera bara í vinnu núna, normal 9-5 eða 10-6 vinnu, ekkert alltaf á kvöldin engin helvítis iðnteikning og allt það og svo ætti maður þá jafnvel svona 1 eða 2 krónur aukalega

svo er svona hundleiðinlegt veðrið hérna alltaf hreint! mig langar til útlanda! miglangar í hita! mig langar á strönd og slappa af.. ekki það að mig langi mikið til að spóka mig um á bikiníi var ekki aaalveg búin að hugsa þetta til enda.. mig langar líka í sjálfsaga! mig reyndar langar alveg í ræktina, ég bara alltaf þegar ég fer núna er ég eins og asni hóstandi og hóstandi þegar ég er varla komin af stað í tækinu og ég nenni því ekki

æjj ég nenni heldur ekki að blogga



Harpa bitra og leiðinlega hehe

hún á afmćlí dag hún á afmćlí dag

14. nóvember 2007 klukkan 11:47
hún á afmælún SUNNAAAAA hún á afmælí daaaag



Harpan, Sunny og Rachel

ein eld af okkur gömu vinkonunum öllum saman á Þorrablóti á Svalbó

Til lykke elskan mín;*

svo átti hún Valdís systir afmæli 9. nóvember




hér er hún heima hjá ömmu Dísu í sveitinni



ég er out.. ég er bókstaflega out.. hef enga orku eftir! þessi veikindi eru orðin pirrandi og leiðinleg! læknir it is.. AGAIN!! af því þetta hættir bara ekki

Upprifjun

08. nóvember 2007 klukkan 20:16
ég var nú bara að vesenast hérna í vinnunni og rambaði inná gamla myndasíðu hjá mér og ákvað að fara að rifja upp aðeins, og skella hérna inn svona nokkrum af þeim myndum sem ég fann á netinu

(kvitta takk.. frekjan í ykkur, ég gef ykkur lykilorðið, og þið kommentið ekki einu sinni í staðin! vinir ha!);)





Bríet Kristý, Anna Karen og ég á leiðinni á tjúttið í mars 2006




ég og Þóra í söngvakeppnarpartýi hjá Hönnu Rós örugglega þarna 2006.. eða jafnvel 2005!



þvílíkt misheppnuð mynd af mér og Öldu systir



ég og Greg í e-m kastala í Luxemburg (þegar ég var í Belgíu)



í Eiffel turninum



við Sigrún mín á Ungfrú Norðurland 2006, þegar Hrabba og Pála voru að keppa



við Hafrún eftir keppnina



ég og Bríet í gamla bílnum mínum



Hafrún og ég í partýi heima hjá henni í Melasíðunni





ég og Anna á leið á Deep Dish hva.. í apríl 2006 held ég





mmmmmmmmm í Mexico... ÞAÐ SEM MIG LANGAR AFTUR!!!







hér erum við fyrsta daginn familían, Egill pabbi tók myndina



mín að útskrifast, Hörður frændi og Elma Eik sætasta stelpan hans



í afmæli hjá Ingó



annar í jólum í fyrra, Annan átti afmæli



gömlu góðu Svalbó vinkonurnar á leiðinni á blótið í byrjun feb. á árinu






á árshátíð símans í vor, mjöööög gaman:)

og loks interrailið...:D







í Amsterdam, er ekki viss um að ég færi þarna aftur bara með Sigrúnu, helst þá með bodyguard með mér, kannski Óla, hann er svo ógnvænlegur... hehe



ooog við Eiffel turinnn

oooo en sætt.. tvær litlar stelpur orðnar fullar af smá kampavíni og dettur það "snjallræði" í hug að láta taxann bíða hjá Eiffelturninum.. taxakallinn fékk okkur nú ofan af því






vá hvað ég var dugleg að muna þetta allt saman!


ætla að fara að halda áfram í work;)

bless elskurnar og KVITTIÐI!!!!

svakalegar píur... eđa bara plain SLUTS?

05. nóvember 2007 klukkan 20:04
nú hefur það einmitt verið mikið rætt hér heima og úti í heimi með íslenskar konur að það séu með þeim myndarlegri í bransanum (þá er auðvitað ekki hægt að tala um allar eins, en svona almennt) það hefur einmitt líka verið rætt mikið um það að þær séu einmitt alveg hrikalega lauslátar, engin 3 deits regla eða hvernig sem þetta er, ég er komin með kenningu, ég vil meina það að fólk fari bara einfaldlega í HAM þegar það fer á tjúttið.. það er eiginlega pínu fyndið að sjá stelpur sem hafa sig þvílíkt til og eru fínar og flottar, og svo kemur Gimme more með Britney Spears á fónin og þær bara geta ekki hamið sig.. þegar stelpur heyra þessi lög, svona "slöttí lög" er eins og sjálfkrafa fari í gang keppni um það hver getur þansað sem djarfast.. sem sagt.. þetta er eins konar losun um .. já.. losun, fólk er vinnandi eins og mofos og kemur á tjúttið og bara aaaaaaaaaaaaaaaa, svona léttir:) allavega fór ég um helgina og það var svona aaaaaaaaaaa, þetta var nú gott, ég er öll hressari! svona í hófi þá, ég er ekki að tala um að maður verði heví hress þegar maður djammar alla daga, þá verður maður veik! hehe

EN útí aðra sálma.. það var keyrt á mig í dag! ég og þessi bíll minn við eigum ekki saman! gæjinn keyrði bara á spegilinn minn og ég héllt hann ætlaði AF! og ég hélt sko að bíllinn væri í rúst, það heyrðist heví hátt.. en neibb.. gæjinn baaara brunaði í burtu! pæliði í þessu! ok það sást ekkert.. en hey það HEFÐI getað sést! en "heppnin" er með mér.. já eða þannig.. alltaf að koma e-ð svona fyrir mig, kannski kominn tími til að það sé ekki bara e-ð voðalegt tjón!

og útí enn annað.. ég klyppti Þóru í dag, hún er algjör pía!:)

og ég er að fara að vinna í Sportver á laugardaginn, allar heimsóknir velkomnar:) og ég held að það sé Palli á laugardagskvöldið? ég held ég skelli mér á það;) ætla að fara í fyrri tímann á föstudaginn svo ég geti farið fyrir hádegi heim:) það verður ljúft að koma heim og fá smá kúr:) en enginn mömmumatur verður það því múttan mín er að fara í borgina, þess vegna er ég jú að vinna

segjum þetta gott í bili..

Harpa ofur.. out

Prófíll

  • Nafn: Harpa Sif Tulinius Sigurđardóttir
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Hairdresser á Medullunni og vinn hjá Símanum međ
  • Hjúskaparstađa: Available;p

Klukkan

Innskráningar kubbur

Könnun

Á ég eftir ađ höndla ađ drekka bara á very special "okkeisjons"?